

HESTATANNHEILSA
HEILBRIGÐUR MUNNUR
JANA ZEDELIUS
HEILBRIGÐUR HESTUR

HESTATANNHEILSA
EHF
DÝRALÆKNARSTOFA FYRIR HESTATANNLÆKNINGA
... er ég, Jana Zedelius, dýralæknir með sérhæfingu í hestatannlækningum í meira en 10 ár.
Ég býður upp á skoðanir og meðferðir á tann-, nefholu- og munnsjúkdómum.
Þar sem stofan mín er uppsett í bílnum mínum get ég heimsótt hestinn þinn í kunnuglegu umhverfi hans.
VIÐHALD & FLÓKNARI TANNMEÐHÖNDLUN
HÖFUÐ- & TANNSKURÐLÆKNINGAR
FYRIR DÝRALÆKNA & HESTAEIGENDUR



VIÐHALD TANNMEÐHÖNDLUN
Mest af mínu daglega starfi sem hestatannlæknir er venjubundin bitjöfnun. Að viðhalda munn- og tannheilsu og koma í veg fyrir að lítil vandamál verði stór er aðalmarkmið mitt. Regluleg yfirferð tannsérfræðinga geta komið í veg fyrir og jafnvel læknað tannholdssjúkdóma, tannskemmdir eða tannrótarbólgu. Ég deyfi alla hesta sem þurfa meðferðar við. Meðferðir geta tekið sirka 60 mínútur. Öll tilfelli eru vel skráð og mynduð. Tannlæknaskýrslan er send í tölvupósti eftir meðferð.
VERÐ
Verð geta verið breytileg, allt eftir deyfingu, áreynslu og tíma.
án aksturs, frá og með:
ISK 29.000
NEFHOLI OG BROT
SJÚKDÓMAR Í NEFHOLUM eru tiltölulega sjaldgæfir, en þegar þeir eru til staðar er erfitt að missa af þeim. Illa lyktandi nefrennsli úr annari nös eru algengustu einkennin og oft þýðir það líka tannvandamál en þó ekki alltaf. Æxli, blöðrur í nefholum, sveppasýkingar eða margúll (e. heamatoma) sýna svipuð einkenni. Lykillinn að velgengni er, eins og alltaf, ítarleg rannsókn með röntgenmyndatöku og speglun (nefholsspeglun kemur á næsta ári!).
BROT Höfuðkúpubrot eru mjög sjaldgæf og þurfa venjulega réttingu og skurðaðgerð. Hægt er að laga rostral mandibular/maxillary (proc. incisores) brot með því að spengja tennurnar réttar.
VERÐ
Verð fer eftir tilviki
KENNSLA & NÁMSKEIÐ
KENNSLA FYRIR DÝRALÆKNA Mér finnst gaman að læra og að kenna öðrum það sem ég kann, sem er bara önnur leið til að læra. Ég bauð öðrum dýralæknum í Þýskalandi þessa þjónustu og ég hlakka til að deila þekkingu minni hér á Íslandi líka. Einstaklingsmiðuð kennsla er krefjandi en mjög áhrifarík. Hvort sem þú leitar ítarlegrar þekkingar um höfuð- og tannlíffærafræði, meinafræði eða aðferðir til notkunar í hefðbundnum tannlækningum og skurðaðgerðum fyrir sjálfan þig eða fleiri, sendu mér skilaboð og við skipuleggjum kennslu saman.
NÁMSKEIÐ FYRIR HESTAEIGENDUR Hvernig veit ég að hesturinn minn á við tannvandamál að stírða? Hvað eru dæmigerð einkenni hjá reiðhestinum? Hvað get ég gert til að viðhalda sem bestri tannheilsu? Sem þjálfari eða hestaeigandi er gott að vita meira um dýrin sín. VERÐ eftir atvikum

Ég er dýralæknir með sérhæfingu í hestatannlækningum.
Í mars 2023 hóf ég rekstur á ferða-hestatannlæknaþjónustu fyrir höfuðborgarsvæðið og Suðvesturland. Ég býð upp á alla þjónustu sem tengist tannvandamálum hesta með aðaláherslu á fyrirbyggjandi tannlækningar.

MEÐ ÁSTRÍÐU, HÆFNI OG SAMKENND FYRIR VELFERÐ HESTA
1
PANTA TÍMA
Af skipulagsástæðum tek ég á móti tímapöntunum skriflega og svara venjulega innan tveggja sólahringa. Fyrir tímann okkar þarf ég að vita fjölda hrossa, nákvæma staðsetningu og símanúmer þess sem verður á staðnum. Sérstaklega ef eigandinn getur ekki sjálfur verið á staðnum, að öðru leyti er gagnlegt að fá nafn, kennitölu og netfang eiganda/greiðanda fyrirfram. Ef mögulegt er skipulegg ég tímana eftir staðsetningu til að halda niðri ferðakostnaði. Fjöldi keyrðra kílómetra er deilt með fjölda eigenda í ferðinni. Neyðartilvik (hestar sem eru ófærir um að éta) hafa forgang! Ps. Íslenskan mín er í vinnslu, ekki láta þér bregða ef ég sletti mikilli ensku inn 😅
2
Á STAÐNUM
Allar tannlækningar fela í sér almennt heilsufarspróf til að tryggja að hægt sé að deyfa hestinn, ítarleg skoðun á höfði þar á meðal tungubein, eitla og kjálkaliði. Skoðun ásamt sjúkrasögu mun strax gefa góða hugmynd um hvert vandamálið gæti verið og hvort það gæti verið margþætt eða eingöngu tengt tannlækningum. Eftir að hafa deyft hestinn og skolað munninn mun ég skoða hann lokaðan og opinn og tennurnar vandlega. Ég mæli umfang og snertingu kinntanna og framtannanna (kallað occlusion) og skoða síðan hverja einustu tönn með spegli (og, ef þarf með myndspeglun), tannástandið verður skráð rafrænt sem eigandi fær svo afrit af með tölvupósti. Tannmeðferðin beinist ekki aðeins að heilbrigði og ástandi hverrar tannar og munnsins í heild, heldur einnig að bit og tennur virki eðlilega. Markmið er að ná jafnvægi í bitsnertingu og viðhalda réttu biti, lífeðlisfræðilegri líffærafræði tanna og virkni, og að fjarlægja allar hindranir og takmarkanir í fram- og kinntönnum. Ég vinn með demantahúðuðum tækjum og ryksugu og ég fylgi nákvæmlega IAED líffærafræðilegum leiðbeiningum, sem þýðir (meðal annars) að ég mun aðeins fjarlægja eins mikið og þarf og á sama tíma eins lítið og mögulegt er af tannefni. Hestar sem eru með alvarlegar bitskekkjur og þurfa mikla vinnu munu fara í nokkrar samfelldar meðferðir til að tryggja að hesturinn geti aðlagast og engar tennur skaðist.
3
Á EFTIR
Hestarnir þurfa um einn til tvo tíma til að vera alveg vakandi eftir bæði hefðbundna meðferð og aðgerðir. Þangað til mega þeir ekki borða eða vera í kringum aðra hesta. Það er eðlilegt að róandi hestar pissi nokkrum sinnum þegar þeir vakna, sumir hestar svitna aðeins á eftir. Þeir þurfa hvíld á tannmeðferðardegi en oftast má ríða út daginn eftir nema ég ráðleggi annað. Sérstök batahvíld gildir um hross sem hafa gengist undir aðgerð. Hestar sem hafa verið dregnar úr úlfatennur fá vikuhvíld, en hægt er að ríða þeim án méls. Í sumum tilfellum eru kírópraktískar, osteópatískar eða sjúkraþjálfunarmeðferðir gagnlegar, stundum nauðsynlegar eftir tannmeðferð til að leysa varanlega stífleika og langvarandi spennu af völdum tannvandamála.